Ískaldir 7up´s

03.04.2007 02:18:59 / Ásgeir

chekkið þetta

Þið verðið að sjá þetta video geggjað!!

http://www.exbyte.net/media/videos/3805/Peeping_Tom.html 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 16:03:36 / Bjarni

Afmælisbarnið hann Ásgeir

Þó að nú sé 13. febrúar þá var 12. febrúar í gær.  En þá átti hann Ásgeir líka afmæli, ekki bara eitthvað afmæli heldur tvítugsafmæli..  og það þýðir að hann sé kominn á þrítugsaldurinn.  Núna getur hann hætt að dobbla mig alltaf í ríkið og drullað sér sjálfur og keypt þá fyrir mig í leiðinni.  Hann þarf ekki lengur að fá lánuð hjá mér skilríkin í bæinn...

En mig langaði bara að deila því með ykkur gott fólk að strákurinn er orðinn 20 ára gamall.

Til hamingju með afmælið Ásgeir, þú verður alltaf myndarlegri með árunum ...  síðustu ár eru búin að vera snilld og ég á þér svo margt að þakka.  Þó held ég að þú eigir mér það að þakka að vera myndarlegur, segjum það allavega.

kallinn

Það sést vel hér að ofan að hann er hress drengur... og oftar en ekki fer hann úr fötunum þegar hann er að djamma.  Þannig að stelpur.. bara hella í drenginn ef þið viljið hann úr fötunum.  Ásgeir er líka þekktur sem Papa Göre!  Og er sjóðandi heitur...

LIIIIKE A GLOVE!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 21:29:55 / Ásgeir

20.ára afmæli mitt

Jæja þá er maður bara komin á þrítugsaldurinn og maður hefur ekkert að gera nema bíða eftir því að deyja, en því var að sjálfsögðu fagnað með smá gleðskap á heimili bróðir mins niðri á hátegsveginum. Ég ákvað bara að hafa þetta fámennt en góðmennt og en þó ég segi sjálfur frá þá skemmti ég mér æðislega vel. Allar gjafirnar voru frábærar og greinilegt að ekkert var sparað í kappann, ánægður með ykkur öllsömul.

Afmælis dagurinn var frábær en ég ákvað að bjóða þeim strákum sem eru mér næst í smá bolta niðri fífu og það mátti sjá á flestum að lítið annað var gert en að liggja uppí rúmi eða á barnum yfir jólafríið. Svo var farið í pottinn og fengið sér smá öl og svo var bara skellt sér í föt og hist uppá háteigsvegi og horft á leikinn, ókey bæ.

Svo fór að fjölmenna í kofanum og sumir helltu sig fulla, sumir gerðu ekkert annað en að háma í sig veitingar, nefni engin nöfn en þetta var mjög gaman. Það kom mér mest á óvart að jelly staupinn skyldu klárast, ég bjó sko til 150 þannig.
Pjásurnar létu að sjálfsögðu ekki lítið fyrir sér fara með tekílað inní eldhúsi en þökk sé þeim man ég varla eftir mér inná hverfis, unnur var að fíla
það.                                                                                        NOT               

En ég vill bara þakka kærlega fyrir mig, ég hefði innilega viljað geta boðið öllum en mátti ekki við margnum.
Henti inn myndunum sem teknar voru en bræður mínir voru svalir á aðstoða mig þetta kvöld og tóku eitthvað af myndum.

http://www.picturetrail.com/hjorvar87

 

 

Á myndinar vantar Sigga Ragga, Ásgeir Bjarna, Pétur Hauk og Róbert

 

Jelly staupin kláruðust, sjiiiiiii

Þetta var geggjað gaman

En takk æðislega fyrir mig öllsömul

Kv. Hjörvar


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 01:34:08 / Ásgeir

Árið 2006

Jæja þá er 2006 liðið og árið er búið að vera mjög skemmtilegt, langar mig að stikla á stóru um það helsta sem gerst hefur á árinu. Ég man að sjálfsögðu ekki allt en þið setjið þá það bara inní comments.

Í janúar í fyrra var fyrsta djammið á nasa en þá plötuðu viktor og Þröstur mig á Pendulum sem urðu svo seinna vinsælir og voru það magnaðir tónleikar. Viku seinna fórum við nokkrir strákar til London og tókum svo lest til Liverpool þar sem var geggjað stuð og sáum við Liverpool vinna Tottenham með hammer frá Kewell. Hápunktur ferðarinnar var án efa mjög súrt fylleri eftir leikinn þegar við enduðum á asískum karíóki bar og hittum Robbie Fowler mjög ölvuðan en hann hafði fyrr um daginn sigrað Manchester United með Manchester city í alvöru derby slag sem city vann 3-0( það gerist ekki oft.) en hann skoraði þar eitt mark

Nokkrir punktar frá ferðinni

  • Stíf drykkja
  • Karíókibarinn
  • Lestarferðin frá London til Liverpool
  • Cheers barinn í London
  • Hitta Robbie Fowler

Í febrúar byrjuðum við Unnur Ágústa svo saman og en við vorum einmitt áðan að panta okkur ferð til Parísar í næstu viku sem á pottþétt eftir að verða fáránlega gaman.
Í byrjun mars fórum við strákarnir úr MK, Ég, Hlynur, Gaui, Hrannar,Viktor, Gunni Pólland (maður ferðinnar, topp gaur) og svo líka Örnurnar og Sigrún Magnea, Thelma og fleiri til DK og Póllands. Man sérstaklega eftir því hvað allir voru hellað þunnir eftir að hafa verið á shooters kvöldið áður, viktor og hlynur voru eins og draugar alla leið til póllands. Mjög eftirminnileg ferð í alla staði, þar var heldur betur djammað þetta land er svo skrítið.

Nokkrir punktar frá ferðinni

  • Zambrúska (vodkinn)
  • Skemmtiferðaskipið
  • Heilagur Patríks dagur (Var Jesu ekki krossfestur þá.. Of fyndið)
  • Endilangar þynnkurútuferðir
  • Allir ógeðisdrykkirirnar sem við smökkuðum á barnum, shiii
  • Og setningin sem Gunni sagði, Justi give me some fish
  • Útrýmingabúðir Nasista
  • Kasjúbar, snillingar
  • Pólski gaurinn sem ég var að skiptast á miðum við á barnum, mjög súrt


Á einhverjum bar hjá strikinu, þar sem öll hjólin voru eins og domino kubbar, hehe snilld


Þegar viðleigðum heitapottinn og vorum helluð, Hrannar brenndi sig á hálsmeninu

Sumarið var líka snilld, allir duglegir að vinna til að eiga nóg pening með sér í útskriftarferðina. Ég og Róbert unnum saman í ruslinu sem var mjög gaman, og sérstaklega þar sem við erum snilldarvinir og vel borgað og fínn vinnutími. Sumarið gekk vel í fótboltanum, Guðmann náði að festa sig vel í sessi í meistaraflokknum með marki í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni og í viðtali eftir leikinn sagði hann við fréttagaurinn, “Já hann veit ekki neitt”,, týpískt Guðmann.

Ég varð reyndar mjög óheppinn með að ná að meiðast 13. júlí og er ennþá meiddur, alveg glatað. Margir vilja meina að ég hafi fitnað, held að það sé bull.

Þegar maður var ekki í vinnunni þá horfði maður á fótbolta, en Ítala urðu heimsmeistarar eftir svakalegan úrslitaleik þar sem allir muna þegar Zidane skallaði Materazzi.

En þá er komið að hápunkti ársins, Búlgaríu, við lögðum af stað frá Keflavík klukkan 18:05 en mætt var tímanlega í fríhöfninna til að versla og fengu margir sér öl. Eftir 4 tíma flug voru margir orðnir mjög ölvaðir, við strákarnir keyptum líka 4 flöskur minnir mig sem kláruðust allar á leiðinni. Um leið og komið var út fóru allir beint á djammið. Dagarnir í Búlgaríu voru mjög heitir og fannst mér fyrsti dagurinn úti eftirminnilegastur, Held að það voru Hrannar, Biggi, Dagur og Viggi sem keyptu handa Unni Ágústu risastórt glas af sex on the beach  en hún átti einmitt 19 ára afmæli 9.ágúst og eftir að hafa verið á corners var farið á annan stað þar sem horft var á Liverpool keppa í undankeppni meistarardeildarinnar og svo fórum við á svona 5 skemmtistaði, og held ég að allir hafi svo hist aftur á McDonalds alla morgna ferðarinnar. Svo var líka fáránlega gaman þegar við fórum á norðurlanda djammið og Íslendingarnir voru svo fáránlega margir að við rústuðum öllum, og það var líka of fyndið þegar MS strákarnir spiluðu Barfly með Jeff Who og það hætti akkúrat þegar kom að lalala partinum. Líka þegar Nils rústaði drykkju keppninni.

 

 


Á leiðinni uppá hótelið af flugvellinu, komum svona 3-4 um nótt og það var 25 stiga hiti


Risastóra glasið sem við náðum engan veginn að klára


Á staðnum þar sem horðum stundum á fótbolta,

Á daginn héngum við svo í sólbaði og var ég orðinn bara mjög brúnn, hell je, einnig fórum við nokkrum sinnum á jet ski sem var geggjað eða djéddjað eins og Pétur Haukur myndi orða það þarna úti. Eitt var þó leiðinlegt við ferðina var að Siggi kæmist ekki með okkur og Óli karlinn líka og svo að Robbi skyldi ekki vera með okkur seinni vikuna líka.
Annað var líka geggjað þegar við fundum bar sem sýndi Ísland spila á móti Spán, þjóðarstoltið að drepa alla og allir að syngja með.
Nokkrir punktar sem voru eftirminnilegastir í ferðinni

  • Þegar Biggi kynntist Jónu
  • Strawberry decory
  • Pitsurnar á corners
  • Boten Anna, (Sjii, hversu oft heyrði maður það á Flower street)
  • Þegar Hrannar og Nils fengu sér tatto-in
  • Þrumur og brjálaðasta rigning sem ég hef lent í.
  • Strippstaðirnir, það vita allir hvað ég er að tala um hahahaha
  • Jet ski
  • Skemmtistaðurinn Iceberg sem við kynntum alltof seint
  • Allar stelpurnar í feik lacoste bolum
  • Gaurinn sem var fokka í Robba, hvað var það eiginlega?????
  • McDonalds og nautakjötið í sem við fengum við hliðiná honum
  • Niðurgangur hjá öllum

En þetta er komið gott, shitt hvað þetta tók langan tíma. En núna áðan áttu fyrstu 87 strákarnir afmæli, Þröstur og Siggi, loksins orðnir 20 ára gamlir og vil ég óska þeim hamingju með daginn og endilega komið með skemmtilega punkta í comments.

Hér eru svo allar myndirnar sem ég tók úr Búlgaríu ferðinni og líka Póllands ferðinni
http://www.picturetrail.com/hjorvar87



Kv. Hjörvar


» 21 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 13:54:45 / Ásgeir

Sælir félagar og Gleðileg Jól!!

Sælt verið fólkið, það er nú orðið soldið síðan að ég bloggaði en ég geri það nú bara samt ;)

Ég var nú að koma frá Danmörku eftir að hafa eytt 5 dögum þar. 3 í köben og 2 í árósum. Þetta var bara mjög fín ferð fyrir utan það að ég fékk matareytrun :s frekar mikill bömmer, var rúmmliggjandi nær allan laugardaginn. En ég vakknaði aftur sprækur á sunnudagsmorgun til í að takast á við heiminn.

En svo var maður líka að klára prófinn og fá einkannir, mér gekk bara þokkalega, 7,5 í meðaleinkunn, 9 í EÐL 503 sem ég bara himinlifandi yfir.

Eitt annað, þessi síða er kominn í yfir 20.000 heimsóknir sem er reyndar ekkert mikið fyrir 9 mánaðar bloggsíðu eða eithvað man ekki alveg. En það er allavegana frábær árángur útaf fyrir sig.

Svo vildi ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 09:43:16 / Bjarni

afmæli!!!

Þetta er soldið seint en ég held að þetta verði nú að koma hérna á síðuna!

En Pétur Haukur átti afmæli á föstudaginn og skreið þá í 19 árin.  Og að sjálfsögðu vil ég óska honum til hamingju með það...  ;)

eins og maðurinn sagði... Betra er seint en aldrei,  og þess vegna segi ég...

Til hamingju með afmælið Pétur minn... hafðu það gott!

Kv. Bjarni


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 19:15:48 / Siggi Raggi

Bonjour Monseur/madamoiselle!

Jæja, ákvað að koma með eitthvað gott hérna, og segja ykkur í stuttu máli frá DaVinci ferðinni minni sem ég fór í byrjun mánaðarins.

Lagt var af stað snemma morguns uppá Leifsstöð og tekið flug til Charles de Gaulle flugvallarins í París. Við eyddum einhverjum 3 dögum í París og er það sá albesti staður sem ég hef nokkurn tímann farið á. Ostarnir, baguetteið, kampavínið, rauðvínið, rare nautasteikurnar og að sjálfsögðu gullfallegustu konur í heiminum. Ég ELSKA þetta land, og er takmarkið mitt að búa þarna einn daginn. En allavega, skoðuðum helling af allskonar menningardrasli sem ég nenni ekki að tala um m.a. Louvre safnið og Eiffel turninn (djöfull sem það er stórt kvikindi).

Eftir þrjá daga af ógleymanlegu fjöri var ferðinni heitið í algjört holræsi miðað við París, London. Ok, gaman að koma þangað flott pleis en djöfull sem ég varð fyrir vonbrigðum eftir PARadÍS. Byrjað var á því að reyna að taka underground uppá hótel, en það var eikkað fuck up með lestarkerfið svo við enduðum á því að taka leigubíl. Allavega! Var reyndar alveg ótrúlega gaman þegar uppi var staðið og toppaði það eiginlega ferðina þegar við tókum dansinn með bongótrommara eitt laugardagskvöldið á Piccadilly Circus. Fengum líka alveg fullt af fólki með okkur í dansinn, endilega tékkið þetta út.

http://www.youtube.com/results?search_query=siggi+raggi 

En ástæða ferðarinnar bara svo við höfum það á hreinu var að elta spor Dan Browns í bókinni The DaVinci Code, og skoða öll minnismerkin í bókinni. Einhvernveginn náði ég samt að snúa því uppí einhverja vitleysu eins og öllu öðru ;)

allavega...

...Tally ho lads!


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 11:24:48 / Bjarni

Vinna, Vinna, Vinna!

Ég verð að segja það að eins og er að ég sakna MK alveg gífurlega.  Maður er gjörsamlega að verða trylltur á þessu hérna, aldrei neitt að gerast og enginn til að leika við, ef þið vitð hvað ég meina!  Ég held að ég vilji bara koma í MK á eftir áramót og taka nokkrar einingar í stærðfræði, bara til að vera með. 

En aftur á móti vona ég að þessi vinna muni efla aðeins í mér sjálfsagann, þar sem ég get ekki ákveðið að sofa lengur ef ég nenni ekki í tíma og þannig.  Það var svakalega sweet!  Heldur núna þarf ég alltaf að drulla mér á lappir hvern einasta morgun! :S  Þetta er nottla ekkert annað en gott. Því ég mun þroskast og eflast í þessu með tímanum. 

En helgin var með betra lagi, því að við skelltum okkur í sumarbústað upp í Holta og Landsveit sem er nú ekki mjög langt frá mínum heimabæ!  Það voru Gusurnar sem voru svo góðar að bjóða okkur og að vanda var mikið fjör hjá okkur.                  Það helsta:

  • Gítarstemning
  • Heitur pottur og sagan af Gísla djöfli.
    • Gísli djöfull, var sem sagt maður sem varð úti þarna í nágreninu og hefur oft sést á bátnum sínum í appelsínugulum regnstakk að veiða út á vatni.. spúkí!!
  • Ég fór í appelsínugulan jakka og hræddi líftúruna úr fólki! 8)
  • Super Nintendo og Mario Kart (Bjarni Á brilleraði)
  • Trivial Pursuit, þar sem ég og stelpurnar unnum restina af strákunum.
  • Maskaður gluggi á eftir að hurðin á húsinu fauk upp og braut hann í drasl.
  • Mögnuð vinnubrögð hjá mér og Sigga Bjarna sem sáu um að leysa gluggan af þar til nýr kemur í staðinn.
  • Kaffi og harðfiskur

Já, margt gerðist þarna hjá okkur og ef ég er að gleyma einhverju þá bara setja í skoðanir..

Ég var einnig með fjölskyldunni á Hellu soldið og spilaði þar Pro mikið með bróður mínum og þetta er gargandi snilld þessi leikur.  Eru menn eitthvað með áhuga fyrir smá strákakvöldi bráðum, að spila pro, drekka bjór og eða spila eitthvað annað???

Látið vita dudes... Over and out

p.s. ég vill minna lesendur á að ef þeir eiga leið um að kíkja aðeins á mig á bjernestu.bloggar.is :lol:  uuhhhuummm,, takk fyrir !


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 23:51:32 / Bjarni

JóJó!!

Þið þarna aumingjar!

Það er merkur hlutur að gerast á næstu dögum... PES6 (Pro Evolution soccer 6)
Kemur út á næstu dögum. Og ég hef ákveðið að helgina 10. og 11. nóvember (fös og lau)
mun ég halda Pro keppni!

Það mun kannski vera verðlaun ef allir leggja bara undir eina kippu eða eitthvað...

Þetta verður allavega stuð og allir að vera með, þetta verður bara fjör og góður félagsskapur!

Kv. Bjarni

p.s. látið vita í skoðanir hverjir vilja vera með...
og já... nýtt blogg á http://bjernestu.bloggar.is

» 20 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 20:54:08 / Olafur

frítt öl

Þér er boðið i frían bjór á Laugardaginn næsta ef

á Klúbbnum eða i öðrum sal ef þu skrair þig i

Sjalfstæðisflokkinn og kýst Guðlaug Þór í 2. sætið!!

Ef þu ert game lattu okkur þa vita og þu matt

 taka eins marga araba með þer og þu vilt ef þeir

kjosa kappan lika.

Það er kosið a Föstudag


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 19:57:51 / Siggi Raggi

Jagsemash!!!

Zup 7up!!!

Tími til kominn að maður taki hérna mánaðarlegu færsluna sína :) Helgin komin að enda og skólinn tekur við á nýjan leik. Sjálfsögðu alltaf jafnömurlegt að rífa sig upp kl. 7:30 um morguninn með eitt mesta "case of the mondays" í heimi, sérstaklega ef að helgin var ekkert sérstök. Fór reyndar á Mýrina í gær, og er það ein sú besta íslenska sem ég hef séð, og þykir fólk ég vera mjööööög brattur við að segja slíkt, en ég stend fastur á mínu.

En eitt það skemmtilegasta við að fara í bíó eru sýnishornin á undan eða "trailerarnir". Ein mynd sem ég held að verði algjör gríðarleg snilld er myndin Borat. Sacha Baron Cohen kominn aftur á nýjan leik með hann Borat sem hann gerði ódauðlegan í Ali G þáttunum. Fór aðeins að gramslast fyrir um þetta og fann heimasíðuna og trailerinn á netinu. Ég er búinn að liggja hérna í hláturskrampa síðan :lol:!!! Ein sú mest gríðarlegasta snilld í heimi. Mæli eindregið að þið tékkið á þessu! Verðið reyndar að horfa aðeins á þetta til að finnast fyndið, en ef þið takið byrjunina á trailernum þangað til hann segir "Jagsemash, my name a Borat, I journalist for Kasakhstan" þá er þetta alveg beint í æð!!

You look!

                                    http://www.borat.tv/


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 16:20:15 / Bjarni

bjernestu.bloggar.is

Sælir... mig langaði bara að koma því á framfæri að ég er kominn með nýja síðu.  Og ég vona að þið miskiljið ekki strákar, því ég er langt frá því að vera hættur með 7ups.

Ég ætla bara að prófa þetta... sjá hvernig gengur ;)

Slóðin er bjernestu.bloggar.is , endilega tékkið á þessu öðru hverju.

Kv. Bjarni


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 23:30:27 / Ásgeir

Jæja..

Ég veit svona eignilega ekki hvað það eru margir með þessa síðu...akkurat þessa stundina held ég að ég sé bara einn...

Og svo stöku sinnum við þá eru bjarni og siggi aðeins með líka, en róbert hefur aldrei bloggað, hjörvar kannski einu sinni og petur einu sinni þegar síðan var að opna, held að það hafi verið 4 línur og var annað blogg þessara síðu.

Þetta á nú ekki að hljóma sem eithvað skamm heldu frekar sem hvatning að gera þetta, henda inn nokkrum línum og reyna að gera þetta eithvað skemmtilegt og svoleiðis... En alla vegana nóg um það. Svona því ég hafði nú ekki mikið að blogga um nema kannski tyllidagana og ballið sem var í gær. Þetta heppnaðist allt bara svona þokkalega, fullt af klúðri og vitleysum en ekkert sem busarnir tóku eftir held ég. Maður var náttla miklu vinsælari en venjulega um leið og maður fær stimpilinn í hendurnar;) Menn vita væntanlega hvað ég er að tala um.

En svona til að hressa eithvað uppá þetta þá breytti ég smá lúkkinu á síðunni, bara að prufa svona...En ég vona allavegana að þið kjánar hafi einhvern tíman smá frítíma til að henda einhverju smá inn, ég hef verið að bíða eftir myndum frá bulgaríu frá hjörvari í svona 2 mánuði hehe, en ég er enþá að bíða spenntur, hjörvar þetta kemur er það ekki??

En hafi þið það bara annars gott,

Kveð að sinni

Ásgeir

p.s. Við í 7up's erum svo heppnir að við eigum meðlim út í Danmörku núna sem er að keppa í HM í fimmleikum sem er náttla bara afrek og fær hann allan okkar stuðning að ganga vel þarna úti...Go róbert;)

Ákvað svo eftir á að henda inn einni mynd af mér þegar ég vann meistaradeildina...Ég og bikarinn og svo eithvað fífl að vera fyrir.


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 16:21:42 / Ásgeir

Helgin...

Ja helgin var bara nokkuð góð verð ég að segja... Byrjaði með því að við fengum gefins miða á Icelandic sensation á broadway á fös. Þetta áttu að vera einhverjir delaux miðar en það var bara ekkert delaux við þá. Var frekar fúll. En þetta var bara fínt kvöld, fór svo í bæinn eftir á en var orðinn eithvað þreittur í endan og ákvað að fara einn heim. Því að siggi vildi halda áfram að djamma. Ég ætlaði þá bara að taka skutluna og man alveg eftir því að hafa borgað þusara í hana og er meira segja með miðan minn enþá. En málið er að ég man ekkert eftir að hafa farið upp í neinn bíl, ég man bara eftir því að eg var vakinn og sagt við mig að við værum komnir. Ég leit út þá var ég fyrir utan húsið mitt og var í limmosíu. Svo labbaði ég bara út og fór eithvað að pæla, horfði á limmuna og fór svo bara inn að sofa. Fannst þetta í rauninni ekker skrítið þá. En þegar eg vaknaði aftur laugardags morguninn graut þunnurað reyna að rifja upp föstudags kvöldið. Þá fór ég að fatta að ég kom einn í limmosíu heim. Pælið í því hvað það er skrítið og muna ekkert hvernig þið komust í hana. Og það var enginn inn í henni nema ég og bílstjórinn. En samt bara gaman að koma heim af djamminu í limmu.

Svo á laugardags kvöldið fór ég með, Sigga Bjarna, Gissur, Vigni og Petri Hauk í afmæli til Sigurborgar, svo kom Barni og Hulda þangað líka seinna. Eftir það þá var bara labbað í bæinn minnir mig, frá Sigurborgu sem bjó í einhverju Túninu þarna í reykjavík, miðtún eða eithvað man ekki. En það var bara fínt í bænum, Gissur var reyndar skallaður og er með tvöfalda vör, ég og viggi meikuðum það á dansgólfinu. Þá er held ég sagan öll um þessa helgi, nema í gær var það bara video, ég, siggi bjarni og harpa horfðum á mjög svo leiðinlega mynd um hersveit sem var að bjarga bandarískum stríðsföngum í filipseyjum sem japanir voru með í gíslingu. Hljómar vangefið vel.

En ég bið að heilsa öllum

Ásgeir Bjarni


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 16:37:17 / Ásgeir

Góðir hálsar...

Jæja, mig langaði bara henda nokkrum orðum hérna inn, fyrsta bjórkvöld mk var í gær og var það bara fínt, Magni lenti í fjórða sæti í Supernova þættinum og Lukas Rossi vann. Þessi tiltlingar skítur, ég var alveg sáttur við að Magni vann ekki en að Lukas vann uss, ég var að vonast til að Toby myndi vinna.

En svo eru slæmu fréttirnar, ég var að fara með bílinn minn í skoðun áðan og fokking helvítis ég fékk endurskoðun, útaf helvítis djöfulsins pústinu....Þetta ópel drasl á bara að fara á haugana, nei ég segi svona en bögg, hvað haldið að maður hefur aur fyrir því að fara aftur með bílinn í skoðun og kaupa nýja kút undir bílinn.

En mamma fór aftur til DK í dag og pabbi fer á sunnudag, mamma ætlar reyndar ekki að láta mig lengi í friði og kemur aftur á þriðjudaginn og verður í tvo daga. Þá held ég að ég fái smá ró.

En nú er bara komin helgi ég er að fýla það í tætlur...Afmæli hjá Evu Dögg okkar í kvöld og skemmtileg heit...

Heyrumst öll kát og hress....

Heilsa

Ásgeir Bjarni


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6